Nýr söluaðili tekur við rekstri Norðurár 2022

Skrifað 25/09/2021

Guðrún Sigurjónsdóttir fyrir hönd Veiðifélags Norðurár og Rafn Valur Alfreðsson fyrir hönd FHD ehf hafa undirritað samning um sölu og umsjón Norðurár til næstu 5 ára. Samningurinn var samþykktur samhljóða á félagsfundi í Munaðarnesi í gærkvöldi.

Á aðalfundi Veiðifélags Norðurár í vor var samþykkt að leita að söluaðila til selja veiðileyfi í Norðurá með líku fyrirkomulagi og gert hefur verið síðan 2013. Margir sýndu því áhuga að koma að rekstri árinnar og ræddi stjórnin við fjölmarga aðila. Niðurstaðan var að semja við Rafn um að taka að sér sölumálin. Gert er ráð fyrir lítillega breyttu fyrirkomulagi með færri stöngum og stækkun aðal veiðisvæðis. Rafn sér því um sölumál Norðurár auk Miðfjarðarár næstu árin.

Rafn lísti því yfir að hann væri gríðarlega spenntur fyrir þessu verkefni á sama tíma og hann er afar stoltur yfir því trausti sem landeigendur við Norðurá sýna honum. "Ég hef alla tíð lagt mikinn metnað í minn rekstur sagði Rafn og það að Norðurá sé nú innan minna vébanda mun efla mig og félag mitt í að gera enn betur. Hér er mikil saga og Norðurá á sér mjög stóran hóp aðdáenda þannig að ég er að taka við góðu búi. Við höfum fengið til liðs við okkur Brynjar Hreggviðsson sem er reynslumikill sölumaður og mun aðkoma hans styrkja okkur enn frekar."

Bókanir


SALA VEIÐILEYFA:

Rafn Valur Alfreðsson gefur allar upplýsingar varðandi bókanir og sölu veiðileyfa í Norðurá í síma 8246460 eða í gegnum netfangið sala@nordura.is

Norðurá


Veiðifélag Norðurár
Sími: +354 859 3959 nordura@nordura.is

Veiðihúsið Rjúpnaási sími: 435 0058

Veiðivörður Norðurár sími: 860 0333.

Staðsetning


Norðurá er í Borgarfirði, um 110 km fjarlægð frá Reykjavík, ef miðað er við staðsetningu veiðihússins á Rjúpnaási.

Á netinu