Lausar stangir sumarið 2018

Skrifað 16/03/2018

Tilboð á Munaðarnessvæðinu:

Á Munaðarnessvæðinu er veitt á 3 stangir sem við seljum alltaf saman og veitt frá 08.00 að morgni til 22.00 að kvöldi með hléi milli 13.00-16.00. Ekkert veiðihús er á svæðinu. Veitt er á flugu eingöngu og leyfilegt að drepa 3 laxa á dag. Öllum laxi 70 cm og stærri skal sleppt. Svæðið nær frá Kálfhylsbroti til og með Engjanefi.

Tilboðið sem við bjóðum er þannig að þú greiðir fyrir 2 stangir en mátt veiða á 3 stangir. Allar upplýsingar gefur Einar Sigfússon og er netfangið einar@nordura.is eða í síma 8939111.

Norðurá I:

Eigum lausar stangir á þessum dagsetningum:

Lausar stangir:

15. -18. júní 3 stangir

3. -06. júlí 3 stangir

9. -12. júlí 2 stangir

27. -30. júlí 4 stangir

2. -05. ág. 2 stangir

7. -09. ág. 4 stangir

19. -22. ág. 5 stangir í boði. Tilboð kr 60.000 dagurinn og er innifalið veiði, gisting og fullt fæði fyrir einn. Verð fyrir aukamann í húsi kr 22.000.

28. -30. ág. 4 stangir í boði. Tilboð kr 55.000 dagurinn og er innifalið veiði, gisting og fullt fæði fyrir einn. Verð fyrir aukamann í húsi kr 22.000. Gerist varla betra.

Norðurá II- Fjallið.

Á þessu svæði er veitt á 3 stangir og er veiðihúsið í Skógarnefi innifalið í veiðileyfinu. Þarna eru veiðimenn í sjálfsmennsku. Í veiðihúsinu eru 3 svefnherbergi með 6 rúmum sem öll eru uppá búin við komu gesta í hús og hreint handklæði á hverju rúmi. Baðherbergi með sturtu, velbúið eldhús, setustofa/borðstofa og gasgrill á palli.

Það er laust eftirfarandi daga:

21. -24. júlí

6. -09. ágúst

19. -21. ágúst

21. -23. ágúst

Allar upplýsingar gefur Einar Sigfússon og er netfangið einar@nordura.is eða í síma 8939111.

Bókanir


SALA VEIÐILEYFA:

Rafn Valur Alfreðsson gefur allar upplýsingar varðandi bókanir og sölu veiðileyfa í Norðurá í síma 8246460 eða í gegnum netfangið sala@nordura.is

Norðurá


Veiðifélag Norðurár
Sími: +354 859 3959 nordura@nordura.is

Veiðihúsið Rjúpnaási sími: 435 0058

Veiðivörður Norðurár sími: 860 0333.

Staðsetning


Norðurá er í Borgarfirði, um 110 km fjarlægð frá Reykjavík, ef miðað er við staðsetningu veiðihússins á Rjúpnaási.

Á netinu